Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Úthlutun úr Sprotasjóði 2026

13. apríl 2026

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 64.370.000 kr. til 20 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu á laugardaginn 11. apríl 2026.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla sjóðsins er hjá Rannís.

Áherslusvið sjóðsins árið 2026 voru:

  • Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi

  • Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði

Sjóðnum bárust 39 gildar umsóknir að undangenginni auglýsingu og sótt var um rúmlega 146 m.kr.

Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit styrktra verkefna Sprotasjóðs og nánari upplýsingar um hvert verkefni með því að velja númer verkefnis fremst í töflu.

Á gagnatorgi Rannís er einnig hægt að nálgast upplýsingar um styrkt verkefni Sprotasjóðs frá árinu 2022 og stutt lýsing úr lokaskýrslu birtist eftir að verkefni er lokið.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk árið 2026:

Styrkþegi

Heiti verkefnis

Úthlutaður styrkur

Kópavogsbær

Gervigreind – Uppspretta nýrra tækifæra?

6.550.000 kr.

Menntaskólinn á Ísafirði

Hönnunarhugsun í þróun kennsluhátta og námsmats

6.250.000 kr.

Mosfellsbær, allir leikskólar

Samskiptasáttmáli Mosfellsbæjar

5.000.000 kr.

Listasafn Íslands

Þar sem sögur mætast

4.460.000 kr.

Hagaskóli

Íslenska í daglegu lífi ungmenna

4.200.000 kr.

Kópavogsbær, menntasvið

Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs

4.000.000 kr.

Foldaskóli

Skólastofa samtímans

4.000.000 kr.

Sveitarfélagið Árborg, leikskólinn Jötunheimar

Mál skiptir máli

3.500.000 kr.

Neyðarlínan ohf.

Stærri og sterkari Sexa

3.410.000 kr.

Lundasel - Pálmholt

Að undrast - Samræður í leikskólastarfi

3.360.000 kr.

Borgarhólsskóli

Lítil skref á leið til læsis

3.200.000 kr.

Reykjavíkurborg, leikskólinn Rauðhóll

Skógarhópurinn - Rannsókn í þágu lýðheilsu barna

3.000.000 kr.

Borgarbyggð, leikskólinn Klettaborg

STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar

2.660.000 kr.

Akureyrarbær, Glerárskóli

Fjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir

2.500.000 kr.

Vogaskóli

Raddir ungmenna, lýðræði, tölfræði og textalæsi

2.000.000 kr.

Akureyrarbær, Iðavöllur

Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms

2.000.000 kr.

Selásskóli

Leikur á viku hreyfing, samvinna og lýðræði í leik

1.730.000 kr.

Alice Demurtas

Kveikt - QFT í Kennslustofunni

1.200.000 kr.

Vogaskóli

Undirbúningur milli skólastiga

800.000 kr.

Reykjavíkurborg, Hvassaleitisskóli

Læsi fyrir lífið

550.000 kr.