Æskulýðssjóður, fyrri úthlutun 2026
16. apríl 2026
Mennta og barnamálaráðuneytið hefur að tillögu stjórnar Æskulýðssjóðs ákveðið að styrkja níu verkefni að upphæð tæpar 6,6 milljónir. Þetta er fyrri úthlutun ársins 2026.

Æskulýðssjóði bárust alls 22 umsóknir um styrk vegna umsóknarfrests 16. febrúar s.l. Sótt var um styrki að upphæð 23.730.529 króna.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenn og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Eftirtalin verkefni fengu styrk:
María Haraldsdóttir | Æskulýðshluti Slysavarnadeildarinnar í Reykjavík | Styrkleikar í rústum | 817.359 |
Anna Lilja Steinsdóttir | Ísafjarðarkirkja | Uppbygging æskulýðsstarfs og leiðtogaþjálfun | 461.950 |
Eyrún Huld Ásvaldsdóttir | Kirkjumiðstöð Austurlands | Rætur og vængir | 490.000 |
Sara Jóhanna Geirsdóttir Waage | Ungmennafélag Íslands | Samtal ungmennaráða | 400.000 |
Hjördís Rós Jónsdóttir | KFUM og KFUK á Íslandi | Æskulýðsstarf með börnum í breyttu umhverfi | 630.000 |
Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi | Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi | Rappkeppni 10-12 ára | 1.100.000 |
Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir | KFUM og KFUK á Íslandi | Þátttaka, ábyrgð og áhrif - Ungmennaráð KFUM&KFUK | 1.000.000 |
Sandra Ýr Andrésdóttir | Slysavarnafélagið Landsbjörg | Fréttastofa ungmennaráðs SL | 950.000 |
Sigríður Vala Jóhannsdóttir | Félag heyrnarlausra | Barna- og ungmennasvæði á Norrænni menningarhátíð | 750.000 |
6.599.309 |
Næsti umsóknarfrestur er 15. október 2026.