Fara beint í efnið
Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Skógrækt á lögbýlum

Verkefnið snýst um að styðja við skógrækt á lögbýlum með því markmiði að:

  • Rækta nýja skóga til að byggja upp fjölbreytta skógarauðlind.

  • Nýta skógana með sjálfbærum hætti svo þeir skili sem mestum ávinningi fyrir hagkerfið, samfélagið og umhverfið.

  • Styðja við byggðaþróun.

  • Stuðla að kolefnisbindingu með ræktun skóga og aðlögun þeirra að loftslagsbreytingum.

  • Efla og vernda jarðveg og draga úr hættu á tjóni vegna náttúruvár.

Bændur, landeigendur eða ábyrgðarmenn lands geta tekið þátt í skógræktarverkefnum á jörðum sínum, ýmist til nytja, skjóls eða annarra markmiða sem tengjast landbótum og sjálfbærni.

Skjólbeltarækt er iðulega hluti af þessum verkefnum og felur í sér gróðursetningu trjáa og runna til að:

  • Verja land gegn rofi (vindrofi, vatnsrofi).

  • Bæta skilyrði fyrir ræktun og búfé.

  • Skapa skjól fyrir fólk, búpening, ræktun og mannvirki.

Nánari upplýsingar og umsókn um stuðning