Vinnumarkaðurinn
Jafnrétti á vinnumarkaði þýðir að allir einstaklingar fái sömu réttindi, tækifæri og virðingu í starfi. Það á við óháð kyni, aldri, uppruna, fötlun, kynhneigð eða öðrum persónulegum þáttum. Það þýðir einnig að ráðningar, laun, starfsþróun og ábyrgð byggist á hæfni og frammistöðu en ekki fordómum eða staðalmyndum.
Jafnrétti á vinnumarkaði byggir á nokkrum lykilatriðum.
Allir eiga að fá jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf.
Ráðningar eiga að vera sanngjarnar og gagnsæjar.
Allir skulu hafa jafnt aðgengi að fræðslu og framgangi.
Vinnuumhverfið á að vera öruggt og án mismununar og áreitni.
Jafnrétti felur líka í sér sveigjanleika.
Stuðning til að samræma vinnu og einkalíf, til dæmis vegna foreldraorlofs.

Jafnrétti
Jafnrétti felur í sér jöfn laun, sanngjarnar ráðningar og öruggt vinnuumhverfi.
Það styður einnig við sveigjanleika milli vinnu og einkalífs.

Jafnlaunakerfi
Jafnlaunakerfi er kerfi sem tryggir að laun séu ákveðin með skýrum, hlutlægum og gagnsæjum viðmiðum þannig að allir fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni.

Mismunun á vinnumarkaði
Vissir þú að mismunun er ólögleg – bæði í daglegu lífi og á vinnumarkaði?

Jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun er skipulögð áætlun sem fyrirtæki eða stofnanir setja til að tryggja jafna stöðu og tækifæri alls starfsfólks.
