RHA og Jafnréttisstofa í samstarf um þróun jafnréttisvísa fyrir orkugeirann
22. apríl 2026
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) og Jafnréttisstofa hófu nýverið samstarf vegna framkvæmdar verkefnisins Energising Nordic Equality sem Jafnréttisstofa stýrir fyrir Nordic Energy Research.

Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) og Jafnréttisstofa hófu nýverið samstarf vegna framkvæmdar verkefnisins Energising Nordic Equality sem Jafnréttisstofa stýrir fyrir Nordic Energy Research.
Markmið verkefnisins er að kanna núverandi stöðu kynjajafnréttis í norræna orkugeiranum. Verkefnið miðar að því að veita stjórnendum, leiðtogum í atvinnulífinu og menntastofnunum hagnýt verkfæri til að styrkja jafnrétti kynja í orkugeiranum.
Að verkefninu vinna Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur og félagsfræðingur hjá Jafnréttisstofu, og Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA.
Þróaður verður Jafnréttisvísir fyrir orkugeirann, byggður á tölfræðilegum gögnum, til að fylgjast með framvindu jafnréttis kynja á ólíkum stigum og sviðum. Vísirinn mun endurspegla bæði þátttöku og upplifun og vera þannig úr garði gerður að hægt sé að uppfæra hann með tímanum og sýna áhrif mismunandi jafnréttisátaka.
Auk greiningar leitast verkefnið við að auka sýnileika og vitund á kynjajafnrétti í orkugeiranum á Norðurlöndum. Haldnir verða fundir og vinnustofur til að tryggja víðtæka þátttöku og aðkomu hagsmunaaðila.
Í lok verkefnis verður skýrslu skilað sem inniheldur samanburðarhæfar tölfræðilegar upplýsingar, tilvikarannsóknir og jafnréttisvísi fyrir orkugeirann. Að auki mun verkefnið leiða af sér skýrar stefnumótandi tillögur.
