Öll skilaboð frá teyminu eru birt á mínum síðum Heilsuveru.
Því er mikilvægt að þau sem eiga beiðni hjá ADHD teyminu hafi aðgang að Mínum síðum á Heilsuveru og að rétt farsímanúmer sé skráð í þar svo að SMS-tilkynning um ný skilboð berist
Haft er samband í gegnum Heilsuveru við þá einstaklinga sem eru á biðlista teymisins. Send er SMS-tilkynning um að þau eigi skilaboð á Heilsuveru. Tilgangur skilaboðanna í Heilsuveru er að upplýsa um stöðu beiðnar hjá teyminu.
Alltaf eru send skilaboð til að tilkynna ef beiðni er samþykkt á biðlista.
Ef við á sendir teymið skilaboð til að:
Staðfesta að beiðni hafi borist teyminu.
Tilkynna um frávísun frá biðlista og ástæðu þess.
Óska eftir frekari upplýsingum svo hægt sé að vinna úr umsókn um þjónustu teymisins.
Mikilvægt er að lesa innihald skilaboðanna þegar óskað er eftir frekari gögnum eða upplýsingum.