Signs of safety - SofS
Með framkvæmdaáætlun ríkisins á sviði barnaverndar fyrir árin 2023 – 2027 voru samþykktar umfangsmiklar úrbætur á þjónustu við börn. Hugmyndafræði Signs of safety - SofS (Merki um öryggi) var meðal verkefna sem stjórnvöld settu á oddinn.
Gert er ráð fyrir heildrænni innleiðingu Signs of Safety þjónustu við börn og fjölskyldur á landsvísu.
Undirbúningur hefur staðið yfir frá árinu 2024 hjá Barna- og fjölskyldustofu og hófst formleg innleiðing með námskeiðshaldi og handleiðslu fagfólks haustið 2025. Með þessu móti er verklag og áhættumat um viðbrögð á sviði barnaverndar, stuðningur og ráðgjöf við starfsmenn barnaverndar- og félagsþjónustu efld svo að um munar.
Aðferðin var þróuð í Ástralíu á tíunda áratugnum en hefur undanfarin ár verið innleidd í fjölmörgum löndum sem við berum okkur saman við.
Signs of safety er gagnreynd hugmyndafræði í barnavernd og félagsþjónustu sem býður upp á samræmt verklag og verkfæri til að vinna með börnum, foreldrum og tengslaneti þeirra. Lögð er áhersla á samstarf við börn, fjölskyldur og tengslanet á öllum stigum máls, án þess að missa sjónar af öryggi barns. Aðferðin miðar að því að gera barnaverndarsamstarf skiljanlegt, árangursríkt og miða að varanlegum lausnum fyrir börn og fjölskyldur,
Markmiðið er að barnaverndarstarf á Íslandi verði unnið með kerfisbundnari og markvissari hætti. Jafnframt mun innleiðingin auka gæði starfsins og auka á mannréttindi fólks og þátttöku barna í málum er þau varða.
Fræðsluefni um Signs of Safety
Miðlun upplýsinga við vinnslu barnaverndarmála - Signs of Safety (SofS)
Ýmislegt efni sem tengist Signs of Safety og efni af námskeiðum
Handbók Signs of Safety (Drög) - PDF
Signs of Safety - Vinnubók - PDF
Matsramminn og meginreglur SofS (Glærur) - PDF
Matsferlið og skipulagsrammi SofS (Glærur) - PDF
Dálkanir þrír (Hættuyfirlýsing, öryggismarkmið og skalinn) - Word
Dálkarnir þrír - Word
Dálkarnir þrír með útskýringum á áhersluatriðunum sjö - Word
Þættir sem einkenna árangursríka hættuyfirlýsingu, öryggismarkmið og skalaspurningu (Glærur) - PDF
Skaðagreining (e. harm analysis matrix) - Word
Húsin mín þrjú - Word
Safety Planning Workbook Web v2.6.0 - PDF
Gögn af framhaldsnámskeiði
Harm Matrix Generic including PROMPTS - PDF
Harm Matrix -PDF
Roadmap - Power Point
Key roles and steps - Power Point
My Three Houses - Power Point
Types of questions - Power Point
Safety Planning Worksheet SofS - PDF
The Case of Lucy Nancy and Lacie - PDF
Timeline handout - Power Point
Kennarar á grunnfræðslu Signs of Safety (merki um öryggi)
Audrey Anderson
Haley Muir
Kay Whyte Bell
Ophelia Mac
Mari Jayne
Hér má finna tengil á upptöku upphafsráðstefnu Signs of safety á Íslandi sem fram fór 15. september 2025 og bar heitið Barnavernd í brennidepli.
