Fara beint í efnið

22. apríl 2026

Umferðaröryggi allra

Á þessum árstíma eru ökumenn gjarnan farnir að „kitla pinnann“ og þess hafa sést greinileg merki í umferðinni undanfarna daga. Rúmlega 150 ökumenn hafa verið teknir fyrir hraðakstur víðsvegar í umdæminu á einni viku eða svo og eru þá hraðakstursbrot úr myndavélabíl embættisins ekki talin með.

Sumir þessara ökumanna eiga enn fremur yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda, auk greiðslu sektar allt að 230 þúsund kr. Einn ökumaður má búast við ákæru, en bíll hans mældist á 212 km hraða á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, nálægt Straumsvík. Ökufantarnir eru á öllum aldri, en tveir þeirra voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða eftir að hafa ekið á 72 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 30.

Ökumenn eru minntir á að virða umferðarlög, alltaf og alls staðar. Ekki bara til að forðast óþarfa útgjöld, heldur til að stuðla að umferðaröryggi allra.