Fara beint í efnið

10. apríl 2026

Laus staða framkvæmdastjóra lækninga

Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra lækninga.

Leitað er eftir kraftmiklum, metnaðarfullum og farsælum stjórnanda. Framkvæmdastjóri lækninga situr í framkvæmdastjórn HSU og heyrir undir forstjóra. Starfshlutfallið er 100% og er ráðið í starfið frá og með 1. júní nk. eða eftir samkomulagi.

Starfið felur í sér faglega forystu, stefnumótun og þróun læknisþjónustu í einu stærsta og víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins. Framkvæmdastjóri lækninga ber faglega ábyrgð á læknisþjónustu þvert á stofnunina auk þess sem hann ber ábyrgð á klínísku sviði.

Nánar um starfið má finna hér.