Fara beint í efnið

11. apríl 2026

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu Lögreglunnar á Suðurnesjum um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknahagsmuna yfir kvenmanni vegna alvarlegs umsáturseineltis.

Konan er því laus úr haldi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort úrskurðurinn verði kærður til Landsréttar.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.