22. apríl 2026
22. apríl 2026
Gjöf til hjúkrunarheimilisins Uppsala
Kaupfélag Fáskrúðfirðinga veitti á dögunum Hjúkrunarheimilinu Uppsölum styrk upp á 1.200.000.

Styrkurinn verður nýttur til þess að kaupa 3 nýja lazyboy stóla, TurnAll snúningskerfi í rúm, infrarauðar vörur fyrir úlnliði og hendur, hné og bak til að auka vellíðan og minnka stoðkerfisverki og svo virknistyrk að andvirði 300.000. Það er ómetanlegt fyrir heimilið að eiga öflugt og sterkt bakland en Kaupfélagið hefur í gegnum tíðina styrkt heimilið veglega til að auka aðbúnað bæði íbúa og starfsfólks og fyrir það erum við endalaust þakklát.
Hrefna Eyþórsdóttir sjúkraþjálfari veitti styrknum móttöku á aðalfundi KFFB föstudaginn 17. apríl sl.
Myndina tók Jónína Óskarsdóttir.