Fara beint í efnið

22. apríl 2026

Endurgjöf á útboðsferli

Áhugasamir geta sent inn tillögur og ábendingar varðandi fyrirkomulag rammasamningsútboðs Stafræns Íslands í gegnum einfalda könnun.

Árangur Stafræns Íslands byggir á nánu og góðu samstarfi við öflug teymi í hugbúnaðarþróun ólíkra fyrirtækja á markaði.

Gildi okkar miða að því að verkefnastofan sé áreiðanleg, opin og drífandi og því er markmið þessarar könnunar að fá endurgjöf á aðferðafræði innkaupa hugbúnaðarþjónustu og gefa fólki tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri svo hægt sé að bæta ferla ásamt því að auka gagnsæi og skilvirkni.

Smelltu hér til að svara könnunni, hún er opin til 31. apríl næstkomandi.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.