Fara beint í efnið

Akstur leigubíls

Umsókn um atvinnuleyfi til leigubílaaksturs

Þeir sem vilja keyra leigubíl í eigu eða umráðum rekstrarleyfishafa þurfa atvinnuleyfi frá Samgöngustofu. Slíkir bílstjórar eru oft kallaðir harkari, forfallabílstjóri eða afleysingamenn.

Ferlið

  1. Sækja námskeið hjá Ökuskólanum í Mjódd

  2. Sækja um atvinnuleyfi hjá Samgöngustofu og skila inn öllum gögnum

  3. Uppfylla skilyrði fyrir atvinnuleyfi

  4. Atvinnuleyfi gefið út til fimm ára

Fylgigögn

Mikilvægt er að skila inn fylgigögnum með umsókn.

  • Afrit af ökuskírteini (báðar hliðar)

  • Mynd í leyfisskírteini (nýleg og skýr andlitsmynd með hlutlausum bakgrunni)

  • Lögheimilissaga - Búsetutímavottorð umsækjanda eða forsvarsmanns lögaðila

    • Ef umsækjandi hefur verið með skráð lögheimili erlendis þarf einnig að skila sakavottorði frá viðkomandi landi/löndum skv. 2. tölul. 2 mgr. 5. gr laga um leigubifreiðaakstur

  • Einstaklingar sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu framvísa dvalar- og atvinnuleyfi.

Samgöngustofa hefur yfirlit yfir þá sem hafa lokið leigubílanámskeiðum og aflar upplýsinga úr sakaskrá Íslands og því þarf ekki að skila inn þeim gögnum nema annað sé tekið fram.


Afgreiðsla umsókna

  • Samgöngustofa gefur út atvinnuleyfi til fimm ára þegar öllum skilyrðum er fullnægt og greiðsla hefur borist.

  • Þegar gögn vantar með umsókn eða skilyrðum er ekki fullnægt, lætur Samgöngustofa vita með tölvupósti.

Kostnaður

  • Kostnaður við atvinnuleyfi er samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu og er 8.000 krónur

  • Kostnaður við ökunám og námskeið fyrir leigubíla fer eftir gjaldskrá ökuskóla.

  • Greiða þarf fyrir þau vottorð og gögn sem afla þarf hjá öðrum stofnunum.



Umsókn um atvinnuleyfi til leigubílaaksturs

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa