Fara beint í efnið

Skoðun á íslensku ökutæki erlendis

Skoðun á íslensku ökutæki erlendis

Ökutæki sem skráð er hér á Íslandi en er í notkun erlendis má færa til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunarstöð innan EES. Aðeins eru teknar gildar þær skoðanir sem lokið er án athugasemda í þessum tilvikum.

Ekki er til listi yfir skoðunarstofur innan EES-svæðisins sem eru viðurkenndar til að skoða ökutæki reglubundinni skoðun í hverju landi fyrir sig. Því er nauðsynlegt að spyrjast fyrir um það hjá skoðunarstofunni hvort hún sé opinberlega viðurkennd og geti tiltekið það á vottorðinu eða í fylgigögnum (vísað til Evróputilskipunar 2014/45 um skoðanir ökututækja).

Með umsókn þarf að fylgja

  • afrit af erlenda skoðunarvottorðinu (fram þurfa að koma þær upplýsingar sem skylt er)

  • fram þarf að koma að skoðunin hafi verið framkvæmd í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins númer 2014/45.

Sé umsókn samþykkt fær eigandi senda nýja skoðunarmiða sem hann límir sjálfur á skráningarmerki ökutækisins.

Kostnaður við skráningu á erlendri skoðun í ökutækjaskrá er 1.151 króna.

Skoðun á íslensku ökutæki erlendis

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa