Fara beint í efnið

Til að fá að gangast undir próf, skriflegt eða verklegt þarf að fullnægja ýmsum skilyrðum s.s. að gild próftökuheimild sýslumanns liggi fyrir, að nám sé samkvæmt reglugerð og námskrá og að tilskildum aldri sé náð. Prófdómari skal, áður en próf hefst, kanna skilríki próftaka. Þegar krafa er um ökunám skal ennfremur kanna ökunámsbók, ef ökunám er ekki í samræmi við reglur skal liggja fyrir undanþáguheimild frá Samgöngustofu. Ef ökukennari eða próftaki fer fram á undanþágu frá reglum um ökupróf skal ökukennari beina málinu, með skýringum á ástæðum, til Samgöngustofu til afgreiðslu.

Réttindi og aldur    

Flokkur

Veitir réttindi á:

Aldur

AM

létt bifhjól, á tveimur eða þremur hjólum, hámarkshraði 45 km

15

A1

bifhjól: (a) á tveimur hjólum, afl ≤ 11 kW, slagrými ≤ 125 sm³ og hlutfall afls/þunga ≤ 0,1 kW/kg og (b) á þremur hjólum, afl ≤ 15 kW

17

A2

bifhjól: á tveimur hjólum, afl ≤ 35 kW og hlutfall afls/þunga ≤ 0,2 kW/kg og ekki leitt af bifhjóli með yfir tvöfalt afl

19

A

bifhjól á tveimur eða þremur hjólum

24*

B

bifreið með leyfða heildarþyngd ≤ 3.500 kg, gerða fyrir ≤ 8 farþega auk ökumanns

17

Ba

bifreið til farþegaflutningar í atvinnuskyni í B-flokki

20

BE

bifreið í B-flokki með eftirvagn/tengitæki ≤ 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd

18

C1

bifreið, gerð fyrir ≤ 8 farþega auk ökumanns, leyfð heildarþyngd > 3.500 kg og ≤ 7.500 kg, með eftirvagn/tengitæki ≤ 750 kg að leyfðri heildarþyngd

18

C1a

bifreið til vöruflutninga í atvinnuskyni í C1-flokki

18

C1E

bifreið í (a) C1-flokki með eftirvagn/tengitæki > 750 kg að leyfðri heildarþyngd, leyfð heildarþyngd vagnlestar ≤12.000 kg og (b) B-flokki með eftirvagn/tengitæki > 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd, leyfð heildarþyngd vagnlestar ≤12.000 kg

18

C

bifreið með leyfða heildarþyngd > 3.500 kg, gerða fyrir ≤ 8 farþega auk ökumanns með eftirvagn/tengitæki ≤ 750 kg að leyfðri heildarþyngd

21

Ca

bifreið til vöruflutninga í atvinnuskyni í C-flokki

21

CE

bifreið í C-flokki með eftirvagn/tengitæki > 750 kg að leyfðri heildarþyngd

21

D1

bifreið, ekki lengri en 8 m, gerða fyrir ≤16 farþega auk ökumanns með eftirvagn/tengitæki ≤ 750 kg að leyfðri heildarþyngd

21

D1a

bifreið til farþegaflutninga í atvinnuskyni í B- og D1-flokki

21

D1E

bifreið í D1-flokki með eftirvagn/tengitæki > 750 kg að leyfðri heildarþyngd

21

D

bifreið gerð fyrir > 8 farþega auk ökumanns

23

Da

bifreið til farþegaflutningar í atvinnuskyni í B-, D1 ogD-flokki

23

DE

bifreið í D-flokki með eftirvagn/tengitæki > 750 kg að leyfðri heildarþyngd

23

T

dráttarvél með þeim eftirvögnum sem hún má draga

16

* en þó þeim sem orðinn er 21 árs, hafi hann í a.m.k. tvö ár haft ökuskírteini fyrir A2-flokk.

Skilyrði skriflegra og verklegra prófa

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa