Fara beint í efnið

Vorfundur smábátasjómanna 2026

Smábátur siglir inn fjörð

Vorfundur smábátasjómanna 2026 var haldinn 9. apríl 2026 frá kl. 17:00 - 18:30.

Að fundinum stóðu Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysavarnaskóli sjómanna.

Upptöku af fundinum er að finna hér að neðan en þar fyrir neðan má finna dagskrá fundarins, staðsetningar hans um allt land ásamt gagnlegu fræðsluefni.

Upptaka af fundi

Dagskrá

  • Opnun: Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda

  • Dagskrá og önnur mál, Þorsteinn Þorkelsson sérfræðingur hjá Samgöngustofu

  • Umræður og sýnikennsla um frágang, uppsetningu og losun björgunarbáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson starfsmenn Samgöngustofu.

  • Hættumat um borð. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson

  • Kaffihlé

  • Frumsýning á nýjum auglýsingum Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu um frágang og uppsetningu björgunarbáta og mikilvægi gátlista áður en lagt er af stað úr höfn.

  • Aggan, öryggisapp fyrir smábáta, Gísli Níls Einarsson hjá Alda Öryggi

  • Kynning og umræður um öryggismál smábáta. Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna

  • Áherslur aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar vegna strandveiða

  • Skútan lögskráningarkerfi sjómanna notkun og forsendur. Helgi Jóhannesson, deildarstjóri áhafna, skráninga og leyfa hjá Samgöngustofu

  • Umræður ef tími gefst til (fundarmönnum verður líka boðið að senda spurningar inn á fundinn sem verður svarað á fundinum eða eftir hann gefist ekki tími til)

Staðsetning

Fundurinn fer fram á netinu. Hlekkur á fundinn er hér.

Áhugasömum gefst möguleiki að hitta aðra sjómenn, ræða málin, njóta kaffiveitinga og fylgjast með fundinum í húsnæði Slysavarnafélagsins Landbjargar á eftirfarandi stöðum:

  • Höfuðborgarsvæðið: Sjávarklasinn, salurinn, Grandagarði 16, Reykjavík

    • Slysavarnadeildin í Reykjavík og Björgunarsveitin Ársæll

  • Reykjanesbær/Sandgerði: Björgunarmistöðin, Austurgarði 6, Sandgerði

    • Björgunarsveitin Suðurnes, Björgunarsveitin Sigurvon, Björgunarbátasjóður Suðurnesja, Slysavarnadeildin Dagbjörg, Slysavarnadeildin Una og Björgunarsveitin Ægir.

  • Akranes: Jónsbúð, Akursbraut 13

    • Slysavarnadeildin Líf og Björgunarfélag Akraness

  • Grundarfjörður: Sólvöllum 17a

    • Björgunarsveitin Klakkur

  • Snæfellsbær: Björgunarmiðstöðin Rifi, Hafnargata 1

    • Björgunarsveitin Lífsbjörg, Slysavarnadeidin Helga Bárðar og Slysavarnadeildin Sumargjöf

  • Patreksfjörður: Oddagötu 3

    • Björgunarsveitin Blakkur og Slysavarnadeildin Unnur

  • Tálknafjörður: Strandgötu 42b

    • Björgunarsveitin Tálkni

  • Ísafjörður: Sindragötu 6

    • Björgunarfélag Ísafjarðar

  • Skagaströnd: Hafnarlóð 6

    • Björgunarsveitin Strönd

  • Siglufjörður: Tjarnargötu 18

    • Björgunarsveitin Strákar og Slysavarnadeildin Vörn

  • Vopnafjörður: Vogabúð

    • Björgunarsveitin Vopni og Slysavarnadeildin Sjöfn

  • Borgarfjörður Eystri: Heiði

    • Björgunarsveitin Sveinungi

  • Neskaupsstaður: Nesgötu 4

    • Björgunarsveitin Gerpir

  • Breiðdalsvík: Selnesi 8

    • Björgunarsveitin Eining

  • Djúpivogur: Mörk 12

    • Björgunarsveitin Bára

  • Vestmannaeyjar: Faxastíg 38

    • Björgunarfélag Vestmannaeyja og Slysavarnadeildin Eykyndill

Efni fundar

Hér að neðan eru tenglar á efni sem rætt verður á fundinum. Að auki má nálgast fræðslu- og öryggisefni fyrir smábátasjómenn hér: http://island.is/smabatar.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa