Fara beint í efnið

Undirmál sjávarafla

Það er skylda að landa öllum afla sem kemur í veiðarfæri fiskiskipa.

Skráning undirmálsafla

  • Skráning á undirmálsafla telst að hálfu til aflamarks, að hámarki 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð.

  • Undirmálsafla á að halda aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann á að vigta sérstaklega af löggiltum vigtarmanni.

  • Skipstjóri fiskiskips á að tryggja að réttar og fullnægjandi upplýsingar um aflann berist til hafnarvigtarmanns.

  • Lengdarviðmið á undirmálsfiski eru mismunandi eftir tegundum.

Lengdarviðmið undirmálsafla

Fisktegund

Lengdarviðmið, undirmál

Lengdarviðmið hausað undirmál

Þorskur

50 cm

27 cm

Ufsi

50 cm

31 cm

Ýsa

45 cm

26,5 cm

Gull- og djúpkarfi

33 cm

-----------------

Eftirlit og viðurlög

  • Fiskistofa fylgist með löndunum á undirmáli og eftir atvikum sannreynir að undirmál sé undir viðmiðunarmörkum og leiðréttir aflaskráningu ef svo er ekki.

  • Viðbrögð Fiskistofu vegna brota á reglum um undirmál fara eftir alvarleika brotsins, ítrekuð brot geta leitt til þess að skip sé svipt tímabundið leyfi til veiða í atvinnuskyni.

Þjónustuaðili

Fiski­stofa