Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum

Málaflokkur

Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár

Undirritunardagur

9. apríl 2026

Útgáfudagur

6. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 445/2026

9. apríl 2026

SKIPULAGSSKRÁ

fyrir Vörðu.

1. gr.Heiti.

Sjálfseignarstofnunin heitir Varða og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur.

2. gr.Heimilisfang.

Heimilisfang stofnunarinnar er í Reykjavík.

3. gr.Markmið.

Markmið stofnunarinnar er að auka skilning, þekkingu og vitund um málefni varna, viðbúnaðar og viðnámsþróttar Íslands í heild öllum Íslendingum til heilla.

Markmiðunum skal ná með rannsóknum, fræðslu, útgáfu, ráðstefnum og annarri þeirri starfsemi sem er til þess fallin að markmiðin náist.

Stofnunin er sjálfstæð og óháð stofnun. Hún hefur engin tengsl við stjórnmálaflokka, einstök framboð eða hagsmunasamtök.

Stofnunin er ekki rekin í hagnaðarskyni.

Ráðstafa skal fjármunum stofnunarinnar í samræmi við tilgang hennar og markmið. Þannig getur stofnunin bæði staðið að eigin viðburðum, útgáfu og rannsóknum en einnig fjármagnað utanaðkomandi, allt í samræmi við tilgang hennar og markmið. Aldrei má ráðstafa meira fé en stofnunin aflar sér hverju sinni eða hefur aflað sér.

4. gr.Stofnendur.

Stofnandi stofnunarinnar er Davíð Helgason, kt. 101077-5869.

5. gr.Stofnfé.

Stofnfé stofnunarinnar er 2.000.000 kr. sem lagt er fram af stofnanda, sbr. 4. gr. Óheimilt er að endurgreiða stofnfé.

Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim verðmætum er hún kann að eignast síðar. Stofnandi hefur engin sérréttindi í stofnuninni.

6. gr.Stjórn.

Stjórn stofnunarinnar skal skipuð þremur einstaklingum til eins árs í senn. Jafnframt skulu við kjör á aðalmönnum í stjórn kosnir tveir menn í varastjórn til sama tíma. Fyrstu stjórn stofnunarinnar skipa stofnandi auk Kristins Árna Lárs Hróbjartssonar, kt. 281289-2689, og Jóns Elvars Guðmundssonar, kt. 050576-5239, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn. Þá mun stjórn hverju sinni kjósa nýjan stjórnarmann ef stjórnarmenn hverfa frá.

Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu á hverjum tíma uppfylla lögbundin hæfisskilyrði til setu í stjórn stofnunarinnar. Missi stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, eða skipaður fjárvörsluaðili hæfi til stjórnarsetu skulu þeir upplýsa sýslumann um það. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu skýra satt og rétt frá högum stofnunarinnar í opinberum auglýsingum eða tilkynningum, skýrslum, ársreikningi eða tilkynningum til sýslumanns.

Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti ráða. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin stýrir öllum málefnum stofnunarinnar. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hennar sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina.

Stjórn stofnunarinnar getur komið á öðrum stjórnareiningum, sbr. 8. gr.

Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Ákvarðanir sem að lögum heyra undir stjórn má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið, sé þess nokkur kostur. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.

Stjórnarmeðlimir fá engar greiðslur fyrir störf sín. Þeir eiga þó rétt á endurgreiðslu útgjalda vegna starfa sinna í þágu félagsins.

7. gr.Fundarboðun.

Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist þess að stjórnarfundur sé haldinn. Stjórninni er heimilt að setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa hennar.

8. gr.Aðrar stjórnareiningar.

Stjórn stofnunarinnar getur veitt umboð fyrir stofnunina, ráðið framkvæmdastjóra sem kemur fram fyrir hönd hennar út á við og stýrir öllum daglegum málum. Þá er stjórn og framkvæmdastjóra heimilt, eftir því sem þörf er á, að koma á fót ráðgjafaráði, einum eða fleirum, vinnuhópum o.fl. sem vinna að markmiðum stofnunarinnar. Framkvæmdastjóra má veita prókúruumboð.

Framkvæmdastjóri á rétt til setu á stjórnarfundum þótt hann sé ekki stjórnarmaður, en hann fer þó ekki með atkvæðisrétt. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur stofnunarinnar, sem þeir óska eftir og veita ber samkvæmt lögum.

9. gr.Endurskoðendur.

Stjórn stofnunarinnar skal velja einn eða fleiri skoðunarmenn eða endurskoðendur til að yfirfara eða endurskoða reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár. Skoðunarmenn eða endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna stofnunarinnar.

Ákvæði laga um endurskoðendur og endurskoðun gilda um hæfi og störf endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja.

Ársreikningur skal fullgerður og undirritaður eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Ársreikningur skal lagður fram á stjórnarfundi stofnunar til samþykktar. Senda skal sýslumanni áritaðan ársreikning fyrir næstliðið ár eigi síðar en 31. ágúst ár hvert.

10. gr.Reikningsárið og bókhald.

Reikningsárið er almanaksárið og er fyrsta reikningstímabil frá stofnun sjálfseignarstofnunarinnar og til næstu áramóta.

Stofnunin skal færa bókhald um starfsemi sína. Stjórn, framkvæmdastjóri eða fjárvörsluaðili stofnunarinnar skal semja ársreikning fyrir hvert reikningsár í samræmi við lög um bókhald, nr. 145/1994.

Ákvæði laga um bókhald gilda um hæfi og störf skoðunarmanna og trúnaðarmanna. Trúnaðarmenn mega ekki sitja í stjórn eða gegna stjórnunarstörfum fyrir stofnunina.

11. gr.Breyting skipulagsskrár, slit og sameining.

Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina stofnunina annarri sjálfseignarstofnun eða leggja hana niður, þarf samþykki allra stjórnarmanna stofnunarinnar. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumanns. Komi til niðurlagningar stofnunarinnar skal hreinni eign hennar varið til markmiðanna sem greint er frá í 3. gr. hér að ofan eða skyldra markmiða.

12. gr. Staðfesting sýslumanns.

Leita skal staðfestingar embættis sýslumanns á skipulagsskrá þessari.

Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 9. apríl 2026.

Thelma Dögg Theodórsdóttir.

Martyna Julia Czubaj.

B deild — Útgáfudagur: 6. maí 2026

Tengd mál