Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Kosningar
Undirritunardagur
21. apríl 2026
Útgáfudagur
22. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 390/2026
21. apríl 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um talningu atkvæða, nr. 447/2024.
1. gr.
Á eftir orðunum „frambjóðanda á“ í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar, kemur: þeim.
2. gr.
2. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í kosningum til Alþingis, við forsetakjör og í þjóðaratkvæðagreiðslu skal birta auglýsinguna á vef landskjörstjórnar og í sveitarstjórnarkosningum á vef viðkomandi sveitarfélags.
3. gr.
Á eftir orðinu aðföng í 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar, kemur: og aðstaða; og í stað orðanna „ílát til blöndunar atkvæða“ í sömu málsgrein kemur: að unnt sé að blanda atkvæðum.
4. gr.
Lokamálsliður 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
5. gr.
Við 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar bætist: Sé um að ræða samnýttan atkvæðakassa, sbr. 1. mgr. 76. gr., skal kjörstjóri rjúfa innsigli hans og afhenda atkvæðin flokkuð.
6. gr.
Orðin „í hæfilega stórt ílát“ í 15. gr. reglugerðarinnar falla brott.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin „teknir úr ílátinu og“ í 1. mgr. falla brott.
- 1. málsl. 6. mgr. orðast svo: Að lokinni flokkun atkvæða og yfirferð skal talningarstjóri eða annar starfsmaður í talningu, sem talningarstjóri tilnefnir, tryggja að atkvæði sem flokkuð eru eftir merkingu framboðslista, frambjóðenda eða svarkosta séu á afmörkuðum stað innan flokkunarrýmisins.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar:
- Við 1. málsl. bætist: eftir listabókstöfum, frambjóðendum eða svarkostum eftir því sem við á.
- 3. málsl. orðast svo: Atkvæðaseðlar sem ekki ná viðmiði heils bunka skulu merktir með fjölda atkvæða.
9. gr.
Við lokamálslið 4. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar bætist: en umboðsmenn eiga rétt á að fá ágreininginn bókaðan í gerðabók yfirkjörstjórnar.
10. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 81. gr., 4. mgr. 99. gr. og 6. mgr. 105. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. apríl 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026