Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskólinn á Akureyri

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

26. mars 2026

Útgáfudagur

22. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 389/2026

26. mars 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um val á nemendum til náms í sálfræði við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri, nr. 699/2018.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. orðast svo: Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í 180 ECTS eininga námi í sálfræði og á vormisseri 2. námsárs í 240 ECTS eininga námi í sálfræði með íslensku sem annað mál er ákveðinn af háskólaráði árlega að fengnum tillögum sviðsins.
  2. Á eftir orðunum „Einkunnir annarra námskeiða á haustmisseri 1. árs“ í 1. tölul. 2. mgr. kemur: hjá þeim sem skráð eru í 180 ECTS eininga nám, og á haustmisseri 2. árs hjá þeim sem skráð eru í 240 ECTS eininga nám.
  3. 5. tölul. 2. mgr. orðast svo: Þeim nemendum, sem ná samkeppnisprófum í öllum námsgreinum haustmisseris 1. námsárs í 180 ECTS eininga námi og haustmisseris 2. námsárs í 240 ECTS eininga námi, er raðað eftir lækkandi meðaleinkunn. Nemandi telst ekki hafa staðist próf nema hann hljóti einkunnina 5 minnst. Ef tveir eða fleiri nemendur eru jafnir í síðasta sæti skulu þeir báðir/allir eiga rétt til setu á vormisseri 1. námsárs, hjá þeim sem skráðir eru í 180 ECTS eininga nám, og á vormisseri 2. námsárs hjá þeim sem skráðir eru í 240 ECTS eininga nám.
  4. 7. tölul. 2. mgr. orðast svo: Segi nemandi í 180 ECTS eininga námi, sem öðlast hefur rétt til setu á vormisseri 1. námsárs, eða nemandi í 240 ECTS eininga námi sem öðlast hefur rétt til setu á vormisseri 2. námsárs, sæti sínu lausu innan tveggja vikna frá upphafi vormisseris, skal þeim sem hæsta meðaleinkunn hefur meðal brottfallinna nemenda boðið sætið.
  5. Á eftir orðunum „rétt til náms á vormisseri 1. árs“ í 8. tölul. 2. mgr. kemur: vegna nemenda í 180 ECTS eininga námi og á vormisseri 2. árs vegna nemenda í 240 ECTS eininga námi.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar á grundvelli laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 26. mars 2026.

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.

B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026

Tengd mál