Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
22. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 394/2026
8. apríl 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Breyting á deiliskipulagi fyrir íbúðarhverfi í Norðurbæ vegna Hjallabrautar 45-49C.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. mars 2026 breyting á deiliskipulagi fyrir íbúðarhverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar vegna Hjallabrautar 45-49C.
Breytingin felst í því að gerð er ný aðkoma að íbúðarsvæðinu beint frá Hjallabraut, en aðkoma frá bílastæðum skátaheimilisins verður lokuð. Gestabílastæðum verður fjölgað á lóðinni. Ekki er lengur gert ráð fyrir djúpgámum.
Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi Vesturbæjar vegna Norðurbrautar 33.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. apríl 2026 breyting á deiliskipulagi Vesturbæjar Hafnarfjarðar vegna Norðurbrautar 33.
Breytingin felst í því að heimilt verði að rífa núverandi bílskúr og byggja 48 fm nýbyggingu innan byggingarreits á einni hæð. Heimilt verður að byggja við íbúðarhúsið með viðbyggingu sem er allt að 41 fm að grunnfleti, á einni hæð með kjallara ef landhæð leyfir.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 8. apríl 2026.
F.h. umhverfis- og skipulagssviðs,
Anne Steinbrenner verkefnastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026