Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Fjárlög - ríkisreikningur
Undirritunardagur
4. maí 2026
Útgáfudagur
11. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 38/2026
4. maí 2026
LÖG
um staðfestingu ríkisreiknings 2024.
Handhafar valds forseta Íslands
samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:
1. gr.Staðfesting ríkisreiknings.
Með lögum þessum staðfestist ríkisreikningur fyrir árið 2024, sbr. 58. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
2. gr.Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 4. maí 2026.
Kristrún Frostadóttir.
Bryndís Haraldsdóttir.
(L. S.)
Sigurður Tómas Magnússon.
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 11. maí 2026