Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Grindavík, Almannavarnir
Undirritunardagur
16. apríl 2026
Útgáfudagur
22. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 388/2026
16. apríl 2026
AUGLÝSING
um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.
Á grundvelli þess að ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir almannavarnastigi vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, hefur innviðaráðherra tekið svofellda ákvörðun, með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins, er bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér eftirfarandi frávik frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins:
- Að fundir bæjarstjórnar verði haldnir á öðrum stað en mælt er fyrir í samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins og að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og fastanefnda verði haldnir fyrir utan sveitarfélagið.
- Að nefndarmenn taki þátt í fundum sveitarfélagsins með rafrænum hætti þrátt fyrir að vera ekki staddir í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum þess.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi sem haldinn er utan sveitarfélagsins og á öðrum stað en mælt er fyrir um í 8. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins.
Um er að ræða frávik frá skilyrðum 1. mgr. 14. gr. og 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga.
Heimild þessi öðlast gildi 23. apríl 2026 og gildir til 23. ágúst 2026. Um er ræða sambærilegar heimildir og sveitarfélaginu voru veittar með ákvörðun ráðherra, sbr. auglýsingu nr. 1328/2025.
Heimildin fellur þó úr gildi fyrir 23. ágúst 2026 ef ríkislögreglustjóri aflýsir almannavarnastigi í sveitarfélaginu fyrir þann tíma, sbr. reglugerð um flokkun almannvarnastiga nr. 650/2009 og 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 34. gr. laga nr. 82/2008 um almannavarnir.
Innviðaráðuneytinu, 16. apríl 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026