Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Félagsmál, Almannatryggingar

Undirritunardagur

8. apríl 2026

Útgáfudagur

22. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 385/2026

8. apríl 2026

REGLUGERÐ

um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1149 frá 20. júní 2019 um að koma á fót evrópskri vinnumálastofnun, um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 883/2004, (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) 2016/589 og um niðurfellingu ákvörðunar (ESB) 2016/344.

1. gr. Gildistaka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1149.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1149 frá 20. júní 2019 um að koma á fót evrópskri vinnumálastofnun, um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 883/2004, (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) 2016/589 og um niðurfellingu ákvörðunar (ESB) 2016/344, skal öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 319/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á V. viðauka (Frelsi launþega til flutninga), VI. viðauka (Félagslegt öryggi) og bókun 31 (um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins) við EES-samninginn.

2. gr. Fylgiskjöl.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 319/2023 frá 8. desember 2023, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 48 frá 13. júní 2024, bls. 42, er birt sem fylgiskjal 1 með reglugerð þessari. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1149 frá 20. júní 2019 um að koma á fót evrópskri vinnumálastofnun, um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 883/2004, (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) 2016/589 og um niðurfellingu ákvörðunar (ESB) 2016/344, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 374, er birt sem fylgiskjal 2 með reglugerð þessari.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 64. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, öðlast þegar gildi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 8. apríl 2026.

Ragnar Þór Ingólfsson

félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hafþór Einarsson.

B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026

Tengd mál