Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
11. maí 2026
Útgáfudagur
11. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 473/2026
11. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna fjölgunar íbúða á miðsvæði M10.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 11. maí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036, sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. mars 2026.
Breytingin tekur til heimilda til fjölgunar íbúða úr 20-40 í 45 á miðsvæði M10, við Tryggvagötu 36 og 40 á Selfossi.
Málsmeðferð var vegnar óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 11. maí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 11. maí 2026