Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Árborg
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
22. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 393/2026
8. apríl 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Sveitarfélaginu Árborg.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og samkvæmt viðauka við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 813/2018, sbr. breytingu á samþykktinni nr. 64/2025, sem kveða á um valdheimildir skipulagsfulltrúa til fullnaðarafgreiðslu, er eftirfarandi óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi samþykkt:
Norðurhólar 5 – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Um er að ræða óverulega breytingu á skilmálum deiliskipulags er varðar lóð Norðurhóla 5 á Selfossi, sem tekur til liðar er varðar „Starfsemi“.
Núverandi skilmálar: Nærþjónusta og hreinlega atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu á aðliggjandi lóðum.
Skilmálar eftir breytingu: Nærþjónusta og hreinlega atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu á aðliggjandi lóðum. Heimilt er til bráðabirgða að staðsetja færanlegar kennslustofur innan lóðarinnar í tengslum við rekstur leik- og eða grunnskóla.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Selfossi, 8. apríl 2026.
F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar,
Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026