Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Félagsmál, Atvinnustarfsemi

Undirritunardagur

8. apríl 2026

Útgáfudagur

22. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 386/2026

8. apríl 2026

AUGLÝSING

um hvaða atvinnugreinar og störf innan þeirra lög nr. 42/2010, um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum gilda um.

1. gr.

Lög nr. 42/2010, um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum skulu taka til starfa sem falla undir starfsgreinaflokkun ÍSTARF95 sem hér segir: Klasa 122, klasa 131, klasa 312, starfaflokk 4221, deild 51, starfaflokk 5221, klasa 611, klasa 612, klasa 613, bálk 7, bálk 8 og bálk 9 innan þeirra atvinnugreina sem samkomulag Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem tók gildi 15. júní 2010 sem og viðaukasamkomulagi sömu aðila frá 5. maí 2011, 16. apríl 2013 og 31. maí 2024, tekur til eins og þær eru skilgreindar í atvinnugreinaflokkun ÍSAT2008, sbr. viðauka við auglýsingu þessa.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 42/2010, um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 542/2013, um hvaða atvinnugreinar og störf innan þeirra lög nr. 42/2010, um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum gilda um.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 8. apríl 2026.

Ragnar Þór Ingólfsson

félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hafþór Einarsson.

B deild — Útgáfudagur: 22. apríl 2026

Tengd mál