Ársreikningar sjóða og stofnanna sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá
Frá og með 1. janúar 2025 ber að skila ársreikningum sjóða og sjálfseignarstofnana til sýslumanns. Má gera það um netfangið sjodir@syslumenn.is.
Sá sem ábyrgð ber á sjóði eða stofnun skal eigi síðar en 31. ágúst ár hvert senda sýslumanni áritaðan ársreikning fyrir næstliðið ár. Ef sjóður eða stofnun vanrækir skyldu sína til að skila ársreikningi innan tilskilins frest ber sýslumanni að leggja á stjórnvaldssekt á viðkomandi sjóð eða stofnun.
Sýslumaður heldur jafnframt lögbundna skrá yfir fjárhagsupplýsingar sjóða og stofnana, þar á meðal um tekjur, gjöld, eignir og skuldir, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 19/1988. Skýrslan veitir samantekt og yfirsýn yfir þessa skráningu, skil ársreikninga og framkvæmd eftirlits. Skýrslan er birt almenningi í samræmi við ákvæði laganna um aðgang að upplýsingum.
Tengd lög og reglugerðir
Lög nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá - https://www.althingi.is/lagas/nuna/1988019.html
Lög nr. 112/2024 um breytingu á lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka). - https://www.althingi.is/altext/154/s/2124.html
Reglugerð nr. 140/2008 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá - https://island.is/reglugerdir/nr/0140-2008
Reglugerð nr. 1125/2006 um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá - https://island.is/reglugerdir/nr/1125-2006
Reglugerð nr. 1416/2024 um breytingu á reglugerð um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 1125/2006. - https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/1416-2024
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á VestfjörðumTengd stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum