Fara beint í efnið
Sýslumenn Forsíða
Sýslumenn Forsíða

Sýslumenn

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kristín Þórðardóttir sett sýslumaður í Vestmannaeyjum

4. október 2023

Dómsmálaráðherra hefur sett Kristínu Þórðardóttur, sýslumanninn á Suðurlandi, tímabundið sem sýslumann í Vestmannaeyjum, frá 1. október nk. til og með 30. september 2024.

Tilefni setningarinnar er beiðni Arndísar Soffíu Sigurðardóttur, sem var skipuð í embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum frá 1. apríl 2020, um lausn frá embætti.

Kristín Þórðardóttir mun gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.

Sú ákvörðun að setja sýslumann yfir tvö embætti samræmist áherslum ráðherra í málefnum sýslumanna, þ. á m. að unnið verði að því að fella niður áhrif umdæmismarka gagnvart almenningi. Á sýslumannadeginum 22. september sl., sameiginlegum fræðsludegi sýslumannsembættanna, tilkynnti ráðherra starfsfólki embættanna að hún hygðist fylgja eftir fyrri stefnumótunarvinnu og að setningar sýslumanna í laus embætti væri leið sem hún hefði áhuga á að nýta sér til að ná þeim markmiðum sem stefna málaflokksins byggir á. 

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:00 - 15
Fös. 9:00 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14