Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rán í Breiðholti – þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald

21. mars 2008

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald eða til 28. mars nk. Þeir eru grunaðir um rán og ránstilraunir í Breiðholti. Mennirnir, sem voru handteknir fyrr í dag, eru á þrítugs- og fertugsaldri en einn er undir tvítugu.