Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ölvunar- og hraðakstur

26. júlí 2007

Piltur um tvítugt var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða eftir að bíll hans mældist á 110 km hraða á Strandvegi í Grafarvogi í gærkvöld. Sami piltur var einnig tekinn fyrir hraðakstur á öðrum stað í borginni í fyrrakvöld. Sautján ára stúlka var sömuleiðis svipt ökuleyfi til bráðabirgða í gærkvöld. Hún var staðin að hraðakstri í íbúðargötu í Kópavogi en stúlkan ók á 64 km hraða.

Tvær konur á fertugsaldri voru teknar fyrir ölvunarakstur í gær. Önnur var stöðvuð í austurborginni í gærmorgun en hin í Breiðholti síðdegis. Þá var tæplega hálfþrítug kona stöðvuð í Hafnarfirði en hún ók bæði of hratt og var á bíl búnum nagladekkjum.