Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Notum endurskinsmerki

15. nóvember 2007

Nú þegar svartasta skammdegið grúfir yfir höfuðborgarsvæðinu þykir rétt að minna á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér til verndar.