Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lýst eftir vitnum

7. ágúst 2008

Lögrelgan í Vestmannaeyjum auglýsir eftir vitnum að líkamsáras sem átti sér stað í Herjólfsdal um það leiti sem Brekkusöngnum var að ljúka. Samkvæmt frásögn þess er fyrir árásinni varð, var hann að ganga niður brekkuna á milli stóra sviðsins og veitingatjaldsins þegar hann var slegin í andlitið með flösku. Sá er fyrir árásinni varð var klæddur í gyltar leggingsbuxur, svarta hermannaklossa, bleikt ballerínupils, bleikan bol og með bleika loðhúfu á höfði. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 481 1665.