Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Loftbyssur eru ekki leikföng

12. ágúst 2008

Unglingspiltur slapp með skrekkinn þegar hann varð fyrir skoti úr loftbyssu í Reykjavík í gær. Það varð piltinum til happs að vera með gleraugu en skotið fór í þau en við það kom sprunga í annað sjónglerið. Talið er víst að piltur á svipuðu reki hafi skotið úr byssunni en lögreglan á eftir að ræða við hann og foreldra hans um þetta alvarlega atvik.

Mál af þessu tagi hafa áður komið á borð lögreglu en hún ítrekar að loftbyssur eru ekki leikföng og eiga því ekki að vera í höndum barna og unglinga. Þótt í þeim séu plastkúlur geta þær unnið mikinn og óbætanlegan skaða. Rétt er líka að minna á að loftbyssur heyra undir vopnalög og að enginn fær skotvopnaleyfi nema að hafa náð 20 ára aldri. Þeir sem sækja um leyfi fyrir skotvopnum skulu jafnframt sækja námskeið í meðferð og notkun þeirra.