Krafa um gæsluvarðhald – umsáturseinelti
10. apríl 2026
Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið aðila í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun.

Aðilinn hefur áður verið grunaður um og sætt rannsókn vegna fjölda annarra tilvika umsáturseineltis undanfarin ár og er þeim málum ekki lokið. Lögregla hyggst fara með kröfu um gæsluvarðhald á hendur aðilanum á morgun, laugardag.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Fréttin var uppfærð kl 16:27 – Í fyrstu var gert ráð fyrir að krafa um gæsluvarðhald yfir viðkomandi yrði lögð fram síðar í dag en það verður ekki gert fyrr en á morgun, laugardag.