Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Húsleitir í miðborginni

18. janúar 2008

Lögreglan lagði hald á nokkur spilaborð og fleiri muni í húsleitum í miðborginni seint í gærkvöld. Farið var í tvö hús en grunur leikur á að í öðru þeirra hafi verið rekið spilavíti. Við aðgerðina naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Húsleitirnar voru framkvæmdar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.