Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fundur yfirmanna tölvudeilda lögreglu á Norðurlöndunum

15. september 2007

Dagana 13. og 14. september var haldinn hér á landi árlegur fundur yfirmanna tölvudeilda lögreglu á Norðurlöndunum. Á þessum fundum bera yfirmenn tölvumála lögreglu á Norðurlöndunum saman bækur sínar, skiptast á upplýsingum um verkefni sín og miðla af reynslu sinni af þeim verkefnum sem þeir glíma við. Þarna hefur myndast afar góð samvinna sem skilar öllum þátttakendum miklu.