Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórir karlmenn handteknir vegna sölu fíkniefna

13. október 2008

Fjórir karlmenn milli tvítugs og þrítugs voru handteknir síðdegis á föstudag í aðgerðum lögreglu gegn sölu og dreifingu ólöglegra fíkniefni. Við leit lögreglu fannst amfetamín og kannabisefni sem lögreglan telur að hafi verið ætlað til sölu og dreifingar. Hinum handteknu var öllum sleppt að lokinni yfirheyrslu en þeir hafa allir áður komið við sögu í sambærilegum málum. Málið telst upplýst.