Fara beint í efnið
Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni

25. apríl 2008

Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni í fyrrinótt. Talið er að um sé að ræða tæplega 50 grömm af kókaíni og lítilræði af marijúana. Einnig var lagt hald á 150 þúsund krónur í peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl um þrítugt var handtekinn vegna rannsóknar málsins.