Frumkvæðisathugun GEV á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu
22. apríl 2026
GEV hefur lokið við frumkvæðisathugun á gæðum þjónustu meðferðarheimila Barna- og fjölskyldustofu sem hófst í maí 2024.

Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) rekur meðferðarheimili í umboði mennta- og barnamálaráðuneytisins, sem ber ábyrgð á að slík heimili séu tiltæk samkvæmt 79. gr. barnaverndarlaga. Þegar athugun GEV hófst voru eingöngu tvö meðferðarheimili í rekstri, þ.e. Stuðlar (neyðarvistun og grunnmeðferð) og Bjargey (framhaldsmeðferð fyrir stúlkur og stálp). Grunnmeðferðardeildin Blönduhlíð var opnuð í febrúar 2025, stuðningsheimili tók til starfa í september 2025 og Lækjarbakki (framhaldsmeðferð fyrir drengi og stálp) var opnað í mars 2026.
Markmið athugunar GEV var að kanna gæði þjónustu meðferðarheimilanna og hvort starfsemi þeirra væri í samræmi við ákvæði laga, reglugerða, reglna og leiðbeininga sem um þjónustuna gilda, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga um GEV.
Eftirlitsaðilar heimsóttu Stuðla og Bjargey í júní 2024 og Stuðla og Blönduhlíð í maí 2025. Rætt var við börn sem voru þá á meðferðarheimilunum, foreldra þeirra, hluta starfsfólks og stjórnendur. Einnig lágu upplýsingar og gögn frá BOFS til grundvallar athuguninni sem og upplýsingar vegna kvartana, ábendinga og tilkynninga um alvarleg óvænt atvik til GEV. Niðurstöður voru kynntar fyrir starfshópi forsætisráðuneytis um málefni barna með vímuefnavanda þann 24. febrúar 2026.
Helstu niðurstöður
Börnin sögðu flest að þeim liði vel á meðferðarheimilinu, einnig þau sem voru óánægð með að vera á slíku heimili. Helstu umkvörtunarefni voru varðandi reglur um háttatíma, nikótín- og símanotkun, að fá ekki að vera í samskiptum við vini sína og að fá ekki heimfararleyfi. Sum barnanna hefðu viljað meiri stuðning vegna vímuefnavanda. Öll sögðust þau eiga í góðum samskiptum við starfsfólk og að vel væri komið fram við þau.
Þær kröfur sem gerðar eru til þjónustu meðferðarheimilanna eru að miklu leyti óljósar í núverandi lagaumhverfi. Þá eru kvörtunar- og kæruleiðir vegna beitingu þvingunar óljósar. Mikilvægt er að reglugerð um vistunarúrræði verði gefin út samhliða gildistöku nýrra laga um barnavernd svo ljóst sé hvaða kröfur séu gerðar til starfseminnar í því lagaumhverfi sem gildir hverju sinni.
Framboð á þjónustu meðferðarheimila var verulega skert frá lokun Lækjarbakka vorið 2024 og versnaði eftir bruna á Stuðlum haustið 2024. Féll hefðbundin framhaldsmeðferð fyrir drengi niður í næstum tvö ár. Hafði þetta alvarleg neikvæð áhrif á gæði þjónustu sem ætlað er að veita á meðferðardeild Stuðla og í framhaldsmeðferð fyrir drengi.
Þörf er á fjölbreyttari úrræðum og samstarfi milli kerfa barnaverndarþjónustu og heilbrigðisþjónustu svo tryggt sé að börnum bjóðist þjónusta sem henti þörfum þeirra. Í núverandi lagaumhverfi er eingöngu gert ráð fyrir því að meðferðarheimilin séu félagsleg úrræði og þar sé ekki veitt heilbrigðisþjónusta.
Við þróun úrræða þarf að gæta að því að draga úr hættunni á smitáhrifum milli barna með ólíkan vanda, að viðeigandi úrræði standi börnum til boða sem eru með alvarlegan fíknivanda og eru í þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og að taka betur tillit til þarfa barna með geðraskanir og/eða einhverfu.
Ekki hefur farið fram markvisst mat á árangri meðferðarheimilanna. Nauðsynlegt er að BOFS framkvæmi reglubundið árangursmat í þeim tilgangi að auka gæði þjónustunnar og stuðla að umbótum meðferðarstarfsins.
Bæta þarf innra eftirliti BOFS enn frekar, m.a. með því að tryggja að verklag sé til staðar í samræmi við kröfur sem gerðar eru til þjónustunnar, stuðla að því að starfsfólk framfylgi verklagi og starfi á sambærilegan hátt, ganga úr skugga um að verklagi sé fylgt og vinna að úrbótum í samræmi við niðurstöður úttekta á markvissan hátt.
Börn á meðferðarheimilum hafa sum hver komist höndum yfir hluti sem þeim er bannað að hafa, t.d. kveikjara og fíkniefni. Gæta þarf að því að verklag stuðli að öryggi barna og starfsfólks með þeim hætti að börn hafi ekki aðgang að hlutum sem þeim er óheimilt að hafa.
Í skýrslunni eru sett fram tilmæli um úrbætur og ábendingar til BOFS og ábendingar til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Flest úrbótatilmæli sem sett eru fram í skýrslunni ná til innra eftirlits BOFS. Óskað hefur verið eftir úrbótaáætlun frá BOFS fyrir 1. júní 2026 og skal úrbótum lokið fyrir 1. nóvember 2026.
Skýrsluna má nálgast hér:
