Fara beint í efnið
Geislavarnir ríkisins Forsíða
Geislavarnir ríkisins Forsíða

Geislavarnir ríkisins

Ísland tók þátt í tíunda rýnifundi Convention on Nuclear Safety

21. apríl 2026

Sendinefnd frá Íslandi, skipuð fulltrúum Geislavarna ríkisins, tók þátt í tíunda rýnifundi CNS (Convention on Nuclear Safety) sem haldinn var í Vínarborg dagana 13.–17. apríl 2026.

CNS er alþjóðasáttmáli um kjarnöryggi. Alþjóða kjarnorkumálastofnunin (IAEA) annast framkvæmd og umsýslu rýniferlis samningsins. Samningurinn tók gildi 24. október 1996 en Ísland varð fullgildur aðili að honum haustið 2008. Geislavarnir ríkisins hafa það hlutverk að sýna fram á Ísland uppfylli skuldbindingar samnings í umboði Utanríkisráðuneytisins.

Geislavarnir ríkisins vinna og skila inn skýrslu Íslands vegna CNS á þriggja ára fresti. Skýrslur aðildarríkja eru rýndar í svokölluðum landshópi. Það er nokkra mánaða ferli sem lýkur með rýnifundi þar sem lands­skýrslur aðildarríkjanna, sem þegar hefur verið skilað til IAEA eru kynntar og ræddar. Á rýnifundum funda landshópar og hvert ríki kynnir landsskýrslu og fær endurgjöf í formi spurninga og athugasemda. Að lokum þarf landshópurinn að ná samstöðu um þær áskoranir sem hvert ríki stendur frammi fyrir á sviði geislavarna og kjarnorkuöryggis, sem og um það hvort ríkið hafi skarað fram úr á tilteknum sviðum.

Í landshópi Íslands voru Slóvenía, Pólland, Svartfjallaland, Nígería, Rúmenía, Úkraína, Norður‑Makedónía, Simbabve, Ítalía, Armenía, Kanada og Litháen.

Ísland kynnti landsskýrslu sína fimmtudaginn 16. apríl. Í kjölfar kynningar var fundargestum boðið upp á spyrja nánar út í skýrslu Ísland og kynningu. Spurningar og umræður beindust meðal annars að getu íslenskra stjórnvalda til að standa við skuldbindingar sínar í ljósi smæðar stofnunarinnar (11 starfsmenn) og takmarkaðra auðlinda. Einnig var spurt um stöðu Geislavarna og þá óvissu sem upp er komin vegna ákvörðunar íslenskra stjórnavald um að fækka stofnunum með færri en 50 starfsmenn. IAEA gerir kröfu um að öll aðilddarríki samningsins hafi starfandi sjálfstæða eftirlitsstofunun til að tryggja alþjóðlegar skuldbindingar.

Hlutverk landshópanna er líka að draga fram þau atriði þar sem frammistaða er talin góð. Niðurstaða landshópsins var að Ísland hefði náð mjög góðri frammistöðu varðandi eftirfarandi:

  • Opin og gagnsæ stjórnsýsla Geislavarna ríkisins.

  • Geta Íslands til að aðlagast hratt auknum viðbúnaðarþörfum í kjölfar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda um að heimila þjónustuheimsóknir kjarnorkuknúinna sjófara.

  • Virk þátttaka Geislavarna ríkisins í alþjóðlegu samstarfi og æfingum, þrátt fyrir takmarkað umfang og auðlindir stofnunarinnar.

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169