17. apríl 2026
Umsóknarfresti fyrir strandveiðileyfi er lokið
2026
Strandveiðileyfi
Umsóknarfrestur um leyfi til strandveiða rann út 15. apríl, og alls bárust 840 umsóknir innan frestsins.
Fiskistofa hefur þegar veitt 789 leyfi og eru 51 umsóknir enn í vinnslu, í flestum tilvikum þar sem skilyrði um gilt haffærisskírteini hefur ekki verið staðfest.
Umsóknarkerfi Fiskistofu sækir upplýsingar um haffærisskírteini sjálfvirkt til Samgöngustofu, sem getur haft áhrif á afgreiðslutíma ef upplýsingar liggja ekki fyrir.
Veitt strandveiðileyfi eru aðgengileg í stafrænu pósthólfi útgerðar á Ísland.is. Þá er einnig hægt að nálgast lista yfir útgefin strandveiðileyfi á gagnasíðum Fiskistofu.

