Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

22. apríl 2026

Aflamark til nýliða í grásleppu

2026
Grásleppuveiðar

Samkvæmt reglugerð um úthlutun grásleppu til nýliða er skilgreining á nýliða þessi:

  • Nýliði er sá sem á skip, sem ekki hefur skráða aflahlutdeild og hefur ekki fengið úthlutað aflahlutdeild eða átti rétt á aflahlutdeild í grásleppu vegna fiskveiðiársins 2025/2026.

Að öðru leiti gildir reglugerð um hrognkelsaveiðar auk annarra reglna sem koma fram í lögum og reglugerðum er lúta að veiðunum um veiðar nýliða í grásleppu.

Umsóknir sendast á tölvupóstfangið fiskistofa@fiskistofa.is og umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2025.

Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Nafn, kennitala og lögheimili umsækjanda.

  • Fiskiskip (nafn og skipaskrárnúmer) sem óskað er eftir að aflamark verði skráð á.

  • Á hvaða staðbundna veiðisvæði fiskiskip muni stunda veiðar.