Fara beint í efnið

Hætt við skilnað

Hjón geta óskað eftir því að réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng falli niður með því að fylla út beiðni hér.

Með skráningu sameiginlegs lögheimilis falla réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng niður og aðilar skráðir giftir að nýju í þjóðskrá.

Hafi orðið breyting á forsjá barns aðila við skilnað að borði og sæng, þ.e. ef annað foreldra hefur eftir skilnað að borði og sæng verið eitt með forsjá barns, verður forsjá aftur sameiginleg.