Prófdómari fylgist með hegðun og akstri próftakans í umferðinni, hvort hann fari eftir umferðarreglum og viðbrögðum hans við hugsanlega aðsteðjandi hættum og hvort hann gæti fyllsta öryggi miðað við aðstæður.
Í akstursprófi er prófað úr
undirbúningi aksturs og frágangi bifreiðar
tæknilegri kunnáttu á bifreið
hæfni í umferðinni, öryggi, framsýni, athygli,
tillitssemi við aðra vegfarendur
fylgni við umferðarreglur.
Aksturstími í prófi má aldrei vera skemmri en 45 mínútur.
Þjónustuaðili
Sýslumenn