Dagdvöl aldraðra
Aldraðir sem þurfa reglulega umönnun til að geta dvalið sem lengst á eigin heimili geta sótt um að komast í dagvist fyrir aldraða.
Dagdvöl
Dagvist aldraðra í ýmsum sveitarfélögum
Reykjavík Fljótsdalshérað (dægradvöl)
Garðabær Akureyri (dagþjónusta)
Hjúkrunar- , dvalar- og dagvistarrými, skipt eftir svæðum
Öldrunarmál á vef stjórnarráðsins
- Sækja þarf um dagvist á eyðublöðum sem fást hjá velferðar-/félagsþjónustu sveitarfélaganna. Umsóknarferli er misjafnt eftir sveitarfélögum en upplýsingar þar má fá hjá velferðar-/félagsþjónustum, viðkomandi dagdvöl eða þeim sem sjá um þjónustu og hjúkrun aldraðra hjá sveitarfélaginu.
- Dagdvöl getur verið einn eða fleiri daga vikunnar eftir þörfum.
- Í dagdvöl aldraðra á að meta heilsufar, veita hjúkrunarþjónustu, félagslega ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs, allt eftir þörfum hvers og eins.
- Sú þjónusta sem dagdvöl felur í sér getur verið:
- Fæði.
- Leikfimi og þjálfun.
- Hvíldaraðstaða.
- Tómstundaiðja.
- Böðun.
- Akstur að heiman og heim.
- Víða er starfsemi dagdvalar á sama stað og í samvinnu við þjónustumiðstöðvar sveitarfélaganna og mögulegt að fá aðgang að starfsemi sem þar fer fram.
- Greitt er gjald fyrir hvern dvalardag og er akstur innifalinn í dvalargjaldi.
Vert að skoða
- Dvalarheimili, hvíldarinnlögn og fleira á Ísland.is
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Sveitarfélög
- Öldrunarmál á vef stjórnarráðsins