Fara beint í efnið

Óbyggðir, ráðleggingar til ferðalanga

Ráðlegt er að gæta fyllsta öryggis á ferð um óbyggðir landsins, undirbúa ferðir og kynna sér aðstæður vel.

Láttu vita af ferðum þínum! Mikilvægt er að einhverjir ættingjar eða vinir þekki ferðaáætlun þeirra sem ferðast í óbyggðum. Ef ferðalangar láta ekki vita af sér eða skila sér á áfangastað á áætluðum tíma er hægt að grípa til ráðstafana.

Öryggi í óbyggðum

Fjarskiptabúnaður er mikilvægt öryggistæki þeirra sem ferðast fjarri byggð.
Útbreiðslukort og tíðnitöflur á vef Fjarskiptastofu

Notendur GPS staðsetningartækja geta nýtt sér ókeypis aðgang að forriti hjá Landmælingum Íslands, sem reiknar hnit milli mismunandi hnitakerfa og viðmiðana.
Cocodati vörpunarforritið
Stafræn gögn á vef Landmælinga Íslands

Nauðsynlegt er að skipuleggja ferðir sínar með tilliti til veðurútlits.
Veðurlýsingar og -spár hjá Veðurstofu Íslands

Neyðarskýli Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru staðsett við strendur og á hálendi Íslands. Þau má eingöngu nota í neyðartilvikum.

Gæta ber varúðar þegar ferðast er í námunda við eldstöðvar eða í fjalllendi þar sem snjóflóðahætta getur verið.
Jarðskjálftafréttir hjá Veðurstofu Íslands

Sprungusvæði á jöklum eru síbreytileg og mjög varasöm og óráðlegt að leggja í jöklaferðir nema afla sér upplýsinga hjá kunnugum. Einnig þarf að gæta ítrustu varkárni við ár og kynna sér fær vöð yfir þær.

Ferðamenn sem hyggja á ferðir um óbyggðir geta látið Slysavarnafélaginu Landsbjörg í té ferðaáætlun sína. Ef viðkomandi skilar sér ekki á áfangastað á áætluðum tíma er hafin eftirgrennslan. Þetta á sér í lagi við göngufólk og aðra sem ekki eru í skipulögðum ferðum.
Ferðaáætlunin á vefnum Safetravel.is

Neyðarnúmer á Íslandi er 112 – EINN EINN TVEIR.
Í 112 er öllum neyðarköllum svarað og brugðist við eftir eðli þeirra hvort sem þörf er á leit, björgun eða annarri bráðaaðstoð vegna sjúkdóma eða óhappa.
Neyðarlínan 112 – EINN EINN TVEIR

Vert að skoða

Þjónustuaðili

Vega­gerðin

Almannavarnir

Heim­il­is­fang

Skógarhlíð 14
105 Reykjavík