Fara beint í efnið

Umboðsmaður skuldara, hlutverk

Hlutverk umboðsmanns skuldara er að gæta hagsmuna og réttinda skuldara. Hann skal hafa milligöngu um samskipti og samninga við lánadrottna með hagsmuni skuldara að leiðarljósi.

Embætti Umboðsmanns skuldara á að veita fólki sem á í verulegum skulda- og greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa aðstoð við að öðlast heildarsýn á fjármál sín og leita leiða til lausnar.

Embættið á að veita ráðgjöf og fræðslu um fjármál heimilanna og aðstoða við samninga um greiðsluaðlögun. 

Þá á umboðsmaður skuldara að útbúa framfærsluviðmið og uppfæra þau reglulega. 

Einnig á hann að taka við erindum og ábendingum frá skuldurum varðandi galla á lánastarfsemi og koma þeim á framfæri við viðeigandi aðila. 

Lög og reglugerðir