Rafrænt þjónustulag
Rafrænt þjónustulag
Markmiðið með rafrænu þjónustulagi er að auðvelda opinberum stofnunum að bjóða upp á rafræna þjónustu og aðgang að gögnum auk þess að bjóða upp á ýmsar miðlægar lausnir sem nýtast mörgum stofnunum.
Hvað er rafrænt þjónustulag?
- Rafrænt þjónustulag er samskiptalag fyrir þjónustu opinberra stofnana sem gerir þeim kleift að skiptast á gögnum og nýta sér tilbúnar þjónustueiningar eins og auðkenningu, netskil, rafrænar greiðslur og fleira.
- Einnig má líta á þjónustulagið sem eins konar gátt inn á þjónustu og gögn opinberra stofnana.
Tenging við rafrænt þjónustulag
Þjónustuveitandi
- Tenging stofnunar við rafrænt þjónustulag byggir á því að skrifuð er vefþjónusta sem lýsir því hvernig gögn stofnunar muni líta út. Umfang vinnunnar við að þróa vefþjónustur fer eftir eðli gagnanna og þjónustunnar sem til stendur að veita. Rafræna þjónustulagið gerir ekki sérstakar kröfur til þessara vefþjónusta. Auk þessa þarf að opna eldvegg eða eldveggi eftir atvikum til að gera þjónustulaginu kleift að kalla á hlutaðeigandi vefþjónustur. Til viðbótar framangreindu þarf annars vegar að skrá vefþjónustuna á rafræna þjónustulagið og hins vegar að útbúa notanda sem má nota þjónustuna. Hér er miðað við að notendur þjónustu á rafræna þjónustulaginu auðkenni sig með notandanafni og lykilorði. Síðar verður boðið upp á aðrar aðferðir til auðkenningar.
Þjónustunotandi
- Ef sá sem notar þjónustu, sem veitt er á rafræna þjónustulaginu, sækir hana úr hugbúnaðarkerfi, öðru en vefvafra, þarf hugsanlega að hleypa umferð frá því kerfi inn á þjónustulagið. Eins og getið var um hér að framan þarf í vissum tilvikum að stofna notanda fyrir hverja þjónustu sem í boði er í þjónustulaginu auk þess sem huga þarf að eldveggjum til að koma megi á sambandi milli gagna og þjónustuveitanda annars vegar og þess sem þjónustuna hyggst nota hins vegar.
Öryggi
- Staðlaðar öruggar aðferðir eru notaðar fyrir öll samskipti yfir Netið, t.d. þegar veflykill er sleginn inn, þegar auðkenni viðskiptavinar er staðfest og þegar eyðublað er sent.
Verkfærakista fyrir rafræna stjórnsýslu - í boði forsætisráðuneytis, glærur frá fyrirlestri á UT-deginum 2009, Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu, forsætisráðuneyti.
Verkfærakista - bæklingur á pdf-formi

Mittsvæði