Netskil á Ísland.is
Netskil á Ísland.is
Þjónusta Ísland.is
- Aðstoð við að búa til útfyllanleg rafræn skjöl. Þessi þjónusta hentar vel þeim sem eru með mörg eyðublöð og sjá fram á að langan tíma taki að umbreyta þeim öllum úr hefðbundnum DOC/PDF-skjölum yfir í veflægt form (HTML).
- Netskil á eyðublöðum í gegnum Ísland.is. Þessi þjónusta gerir fólki kleift að senda skjöl rafrænt eftir að hafa auðkennt sig. Hún er sérstaklega ætluð stofnunum sem ekki sjá sér fært að leggja í stórar fjárfestingar varðandi netskil eða telja kostnað við rafræn skil eyðublaða vera meiri en hagræðingu sem honum fylgir.
Ferli við netskil
- Viðskiptavinur sækir eyðublað á PDF formi á Ísland.is eða vefsíðu stofnunar. Eyðublaðið er opið fyrir innslátt í reiti. Hann fyllir út nauðsynlegar upplýsingar og vistar skjalið á tölvunni sinni. Einnig safnar hann saman fylgiskjölum ef við á.
- Viðskiptavinur auðkennir sig á Ísland.is með annað hvort rafrænum skilríkjum eða veflykli ríkisskattstjóra. Auðkenningin er staðfesting á því að sendandinn sé sá sem hann segist vera.
- Viðskiptavinur hleður upp eyðublaðinu ásamt fylgiskjölum í sérstökum „netskilaglugga“ á Ísland.is og gefur einnig upp netfang.
- Skjölin eru send á viðkomandi stofnun og viðskiptavinur fær staðfestingu í tölvupósti um að skjölin hafi verið móttekin. Stofnunin getur nú unnið með skjalið handvirkt eða sjálfvirkt.
Uppsetning
- Til þess að setja upp skjal fyrir rafræn skil þarf að útbúa eyðublað (PDF skjal) sem hægt er að fylla út.
- Einnig þarf að setja í það einkenni sem merkir skjalið stofnuninni sem á eyðublaðið.
- Ísland.is útbýr þetta einkenni og sér um aðrar uppsetningar vegna eyðublaðsins.
- Það eina sem stofnun þarf að gera er að koma sér upp netfangi með sjálfvirkri svörun (auto reply) vegna staðfestingar á móttöku.
- Eyðublaðinu er komið fyrir á vefsíðu viðkomandi stofnunar eða á Ísland.is ásamt hlekk á síðuna „Netskil“ á Ísland.is“.
Ávinningur
- Ávinningur fyrir einstakling er sá að hann getur notað tölvuna sína til að sækja, fylla út og skila eyðublaði án þess að fara úr húsi og hann getur notað eitt rafrænt skilríki eða sama veflykil fyrir mismunandi þjónustu hjá mörgum stofnunum.
- Ávinningur fyrir stofnanir er minna álag á afgreiðsluborð. Rafrænum skilum er komið á án þess að stofnunin þurfi sjálf að koma sér upp lausnum til auðkenningar, kennitala sendandans er staðfest og skjölin berast rafrænt til frekari úrvinnslu með öruggum hætti samkvæmt alþjóðlegum stöðlum um rafræn samskipti.

Mittsvæði